Gretta-Islandia
11.03.2008 16:53:45 / gretta

Its aliiiiiiiiiiiiiiive!!


þetta er líflegasta síða á veraldarvefnum! Ákvað að skrifa lítið eitt til að halda upp á það.

hæhæ

...... she´s just a girl who thinks that i am the oooone


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 14:09:56 / gretta

Sumarárshátið Argimtonachicas

 

 

Annað kvöld it is ladies. Fös 20.júlí. Mjög góð mæting. Þá er það bara spurningin, hvar, hvenær, hvert.

Er einhver með laust húsnæði?

Panta mat, út að borða eða elda?

Djamm eða ekki djamm?

Annað?

KOma svo 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 21:17:17 / gretta

partý partý

 

hæhæ girls!

Elín kom til landsins í dag og það er komin dagsetning á Argimtonachicashitting! það verður sem sagt helgina 20-22.júlí. Nú er það spurning hvort fös eða lau hentar fólki almennt betur fyrir góðan mat, drykk og skrallerí, vonandi í góðu sumarveðri.

hvað segið þið?? e-ar hugmyndir? komiði með þær. endilega líka ef fólk getur haft glaðninginn heima hjá þér, tjá sig um það þá.

bestu kveðjur sætu mínar,
Vilborg


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 18:18:37 / gretta

Vorhittingur Argimtonachicas...!

Hæhæ skvísur :)

Núna þegar prófalestur er kominn á fullt er ekki úr vegi að byrja að plana öll skemmtilegu djömmin þegar maður er búinn í prófum...ekki satt? 8)

Því var ég að pæla hvenær við getum hist allar aftur. Af fenginni reynslu er ekki ráð nema í tíma sé tekið og best að byrja að plana.. líka svo maður hafi eitthvað að gera í prófunum.

En hvenær komið útlandalingar heim? og verðiði örugglega ekki heima í sumar eða hvað?

Endilega kommentið hvenær þið viljið hittast, í lok maí eða í sumar bara??

Helga

p.s.ég er komin með nýja heimasíðu ef þið viljið tékka. Breytti því í linkunum til hliðar


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 13:59:00 / gretta

Árshátíðarmyndir :)

Hæhæ!

Og takk fyrir seinast, skemmti mér mjög vel og er strax farin að hlakka til að hittast næst í sumar! Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna mína, við erum auðvitað rosasætar á öllum.

Ég er komin aftur til Miami, hægt að fræðast meira um það á blogginu mínu. Vona að þið hafið það gott allar. Knús til ykkar!

Vilborg


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 02:56:30 / gretta

Árshátíð


jæja. Gleðileg jól stelpur mínar, núna ættu allir að vera á landinu í góða veðrinu.

Spurning með hitting, þarnæstu helgi sem sagt, það er eini sénsinn og því bið ég hér með fólk að tjá sig um hvort fös eða lau hentar betur. Svo verðum við að ráða fram úr því.

Vona að allir hafi haft það gott yfir jólin og hlakka til að sjá sem flestar af ykkur.

knús,
Vilborg


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 20:12:09 / gretta

Fiesta beibí


Jæja ! Virknin hefur verið gífurleg hér síðan ég fór út ! haaaa. Well Im back and with THE plan of course (orðin smá amerísk líka)

Já! Gera þetta almennilega í þetta skiptið

Árshátíð Argimtonachicas! (verður árlegur viðburður héreftir)

Hugmynd fyrir árshátíð 2006:

1. Hittast sætar og fínar á Tapasbarnum þar sem gætt verður sér á tapas tapas og sangría sangría sangría ! (passa bara að Sigríður drukkni ekki í henni)

2. Fara heim til einhvers í fleiri góða drykki (Cosmo/ Mojito kemur sterkt inn) og góða almennilega Argimtonatónlist (fly on daaas wiiings)

3. Skella sér í towninn á einhver almennilegan stað: þar sem hægt er að dansa dansa dansa !

Þá er það spurningin: Milli jóla og nýárs eða fyrstu helgina í janúar?

Knúúúús de Miami, hlakka til að sjá ykkur allar !
Vilborg


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 15:42:26 / gretta

Long tiiime


Jæja stelpur !

Virknin hér er með ólíkindum ! Mig langaði bara að segja takk æðislega fyrir komuna þær sem sáu sér fært að mæta í afmæliskveðjupartýsveisluna mína. Það var æði að fá ykkur og bara verst að allar hafi ekki komist. En þannig er það nú alltaf. Ný flyt ég af landi brott um miðja næstu viku, og kem ekki heim fyrr en rétt fyrir jól. Því er um að gera að fara að plana jólahitting ;) aðventudjamm

Heyrumst síðar chicas,

kv. Vilbs


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 20:51:20 / gretta

Mödelse?


Hæ pæjur

Og takk fyrir seinast :) Mjög gaman að hitta ykkur allar, köbenbúana, unga skvísumömmu sem og aðrar :) Nú var ég að spá að bjóða ykkur jafnvel heim, ekkert formlegt, bara þær sem komast, hittast yfir léttum veitingum og bjór (eða hvítvíni Elín mín) og kíkja svo jafnvel eitthvert að dansa aðeins, taka nokkur spor a la Billy Jean

Spurning um þarnæstu helgi, 21-22.júlí, hvernig er staðan á ykkur þá

kv.Vilbs


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 09:31:43 / gretta

Hola beibs

 

 

 

 


Jæja!

Nú styttist óðum í hitting, spurning hvort að smá plönun þurfi ekki að fara í gang! Fyrsta pæling er hvort einhver af okkur sé fær um að fá hópinn heim, gætum jafnvel allar komið með e-ð snarl, eða pantað mat t.d. Ef það gengur ekki þá gætum við hist í bjór og með því downtown. Hitt væri þó án efa skemmtilegra.

Aðrar hugmyndir eru very welcome, endilega komiði með það elskurnar, látið það flakka

p.s. Ég set hér með á stað undirskriftalista þess efnis að Svava Lóa Stefánsdóttir komi með tímavél frá landsnámsöld og hitti okkur á fim. Koma svo, allir að kvitta undir!


 


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.06.2006 11:37:33 / gretta

Hittingur


Okei, ég er búin að fá upplýsingar um stöðu mála hjá fólki núna seinnipart júnímánuðar. Á fimmtudeginum 29.júní komast flestir nema Harpa og Sigga H. sem verða úti á þjálfaranámskeiði. (Veit ekki með Hildi). Því er spurning með fim 6.júní í staðinn, gengur það fyrir hinar? (en eruð þið ekki á æfingu til 22 á fim Harpa?)

Ef allir komast fim 6.júní þá gerum við þetta þá, annars verður fim 29 endurskoðaður. Alltaf jafn einfalt ;)

Vilborg


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 22:19:02 / gretta

sumardjamm grettu islandiu!


jæja girls

Sumardjamm. ekki seinna vænna að fara að plana. Svo virðist sem að Sigga og Elín verði báðar á landinu á svipuðum tíma í sumar (Sigga fer aftur, Elín komin heim fyrir sumarið?) og það var pæling að reyna að hittast þá. Þetta er annaðhvort helgin 30.júní-2.júlí eða 7.júlí- 9.júlí....man ekki alveg.

Endilega commenta á þetta ef einhver fer inn á þessu síðu ennþá þeas;)

kv.Vilborg


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 12:12:52 / gretta

Mödelse


Hola argimtona chicas

Jæja er ekki kominn tími á hitting. Ég vil endilega að hún Maja okkar og Lína Sól sætasta komist þannig að maja mín, hvenær ertu laus? :) spurning hvort við hittumst í smá kvöldkaffi heima hjá einhverri af okkur. Já?

sincerely,

ykkar Vilborgsita


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 13:32:54 / gretta

....stelpur....

Jæja þá er bikarmótið búið og stelpurnar okkar stóðu sig með prýði. Það var yndislegt að horfa á þær í nýjum og glæsilegum búningum gera alveg mjög gott mót. Grótta endaði í öðru sæti á eftir Gerplu (eða á maður að segja Stjörnunni E?). Fylkisstúlkur enduðu svo í þriðja sæti. Nú er bara að æfa af kappi fyrir Íslandsmótið og sýna fimleikaheiminum í tvo heimana!! Það er alltaf hægt að gera betur og við krossum fingum og fjölmennum á Íslandsmótið að styðja okkar konur ;)

Baráttukveðjur til ykkar allra
-lifið heilar-

MAJA (fyrrverandi fimleikaiðkandi sem á erfitt með að sitja uppi í stúku :) )


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 09:15:15 / gretta

þá er mín komin í gang

Jiminn góður hvað ég er lengi að taka við mér til þess að blogga...!! Ég sem var komin í ham fyrir jólin....!!!!

Annars er fínt að frétta héðan úr Baunalandinu. Við hjúin erum komin í nýja íbúð, okkar EIGIN íbúð. það er búinn að vera stanslaus gestagangur af fólki sem kemur til þess að mála og hjálpa til við herlegheitin. Svo er bara innflutningspartý 18.feb. til þess að sýna höllina og ég efast ekki um að það verði GOTT partý :)
Síðan leggst mar bara í þvílíkan próflestur.... mar þarf víst að lesa bækurnar til þess að ná prófunum...!!!!

Og svo að fimleikunum, það er ekkert smá gaman að heyra að gömlu kempurnar séu byrjaðar að spreyta sig aftur í íþróttinni.... ég væri sko meira en til í að slást í hópinn.... verð bara að vera dugleg að koma á æfingar þegar ég kem í heimsókn...!!! það liggur við að ég fari bara á stúfana og finni eitt stykki gömlu kellinga hóp hérna í kaupmannahöfninni..!! Langar sko miklu meira að stunda þá íþrótt en að fara í þessa blessuðu rækt......!!! 8| er samt ógisslega dugleg að fara..... er ekki frá því að handavöðvarnir séu farnir að taka við sér..... já og lærvöðvarnir svona líka heldur betur eftir allt þetta hjólerí....!!!! :D

En ég læt þetta duga í bili og þið megið vera duglegar að gefa report frá æfingunum... er æst í að fá að fylgjast með........ :) hver er byrjaður að gera tvöfalt helja á trampólíni og hver er komin í araba-flikk-skrúfa á gólfi...?? eruð þið komnar svo langt?????? :lol:

Kveðja, Siggan 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3